Allt um okkur og lítið meir.
Áhugamálin mín
Vef-læknirinn
20.08.2006 19:06:43 / Ingi

Getur það verið að það sé líf í öðrum löndum?

      Jæja félagar, vinir og systkin. Þá er ég að komast í smá gang eftir allt fríið sem ég hef haft frá takkaborði tölvunnar.;) Það er svo mikið sem hefur verið að brjótast um í kollinum á mér síðustu mánuði að ég hef ekki haft tíma eða list til að skrifa það sem er að gerast innan í kollinum á mér.8| Hann bróðin minn í Danmörku lenti í því sama að einhverju leyti eftir að hann heimsótti Ísland fyrr í sumar og var að vinna þar í smá tíma. :!:

Ég held bara að Ísland sé svona þungt land. Þeir sem búa á þeirri eyju eiga voðalega bágt með að trúa því að það sé til líf þar fyrir utan. Og hvað þá að það geti verið eitthvað betra.

Jæja en svona líður manni allavegana eftir að hafa heimsótt Ísland. Og kanski það sem annað er og verra, að mér finnst, er að þau Jón og Bæina í götunni keypti sér tjaldvagn í sumar fyrir fjölskilduna. Helv. Flottann. Og ég sem keypti mér nýan Land Cruser í vor af því að Binni og Pála á móti keypti sér nýan Range Rover í vetur. Og núna vegna bílsins verður það kanski svolítið ervitt að borga af nýa stóra fellihýsinu sem ég var að kaupa fyrir fjölskilduna svo það fari nú alveg örugglega ekki ver um mína fjölskildu í ferðinni næsta sumar sem við erum vön að fara alltaf einusinni á ári til Laugarvatns eina helgi. Það að segja ef ég get tekið mér frí eina helgi til að vera með fjölskildunni ef það truflar ekki félagana sem ég spila golf með á hvöldin og um helgar þegar ég er ekki að vinna.

Svo er það heiti potturinn í garðinum. Palli og Sigga voru að fá sér alveg frábærann pott og buðu okkur öllum félögunum að koma í partý um síðustu helgi. Hvílíkur pottur. Hann rúmaði okkur öll 15 stikki og með nudd, ljós, hljómflutningsgræur og hvaðeina. Svo núna er ég að hugsa um að gera sundlaug í bakgarðinum en halda gamla litla pottinum svona við hliðina, bara upp á grín. Ég var að skoða stökkbretti til að vera með í djúpulauginni og brú til að vera með yfir laugina og ég frétti að það væri hægt að fá svona vatnsheldann flatskjá með surround til að hafa úti í garðinum. Tilvalið við sundlaugina, já og svo er ég að dunda við það í frítímum að byggja sánaklefa við húsið með útgang að tilvonandi sundlaug. Konan var nú eitthvað að hafa áhyggjur af þessu, af peningum held ég? En ég sagði henni að vera ekkert að hafa áhyggjur af því, við gætum alveg bætt við okkur einu svona reddingar láni ef því væri að skipta. Hann Hjalti í bankanum er alltaf að bjóða mér ódýrt lán ef ég hefði áhuga? En svo er líka hægt að fá allt svona á góðum lánum. Ég er líka að hugsa um að fá mér hund. Já svona stórann. Helst Rottwyler eða labrador, eitthvað stórt og grimmilegt svona varðhund, já bara fyrir luckið. Hann verður að vera hreinræktaður og af góðu kyni annars er ekkert varið í hann, hefur maður heirt. Ég frétti að Hjalti í bankanum væri að hugsa um svona hund, svo ég er að hugsa um að vera fyrri til svaona upp á grín? Já maður getur nú ekki verið minni maður en vinirnir. Heyrðu! Ég heyrði að hann Kalli á 10-unni hefði verið að kaupa sér svona trambolín alveg eins og ég á. Þetta er nú ekki hægt með fólk, það þurfa allir að vera að herma eftir. Ekki getur maður nú fengið að hafa neitt í friði... sussum svei.

 Nú nú, svo var konan að segja mér frá því að Palli og Sigga væru að hugsa um að kaupa sumarbústað!! Humm!! Og hann er nú bara að vinna hjá bænum. Kanski að ég bjóði Hjalta í bankanum bara í golf í dag? Já og eitthvað mynntist hann nú á lóð við Þingvallarvatn fyrr í sumar.

 

 

Siggi skrifaði
Þetta er nú bara snild he he
Ingi skrifaði
Svona eru Íslendingar í hnotskurn:) Bara það sem blasir við manni þegar maður heimsækir Ísland. Hér er tildæmis mjög ervitt að finna jeppa á bílasölum. hanski 1 af hverjum 50 bílum er jeppi. En á Íslandi eru ekkert nema jeppar og ervitt að finna fólksbíl? Skrítið. Því hér er mikklu meiri snjór og kuldi heldur en þar á veturna. Skrítið. :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan