Blessuð jólin Munið þið eftir eftirvæntungunni og spennunni, eftir jólunum? Hvað dagarnir voru hrikalega lengi að líða og jólin ætluðu aldrei að koma. Ha? Gleðinni og jólasöngvunum? Jólaballinu í samkomuhúsinu og bara stemmningunni í loftinu? Munið þið ekki eftir þessu?Það er kanski ervitt að láta sér koma þetta í hug í dag og að það hafi vikilega verið svona gaman í alvöru. Allavegana finnst mér allt of stutt á milli jólanna núna. Það eru valla liðin jólin þegar maður ef farinn að hafa áhyggjur af þeim næstu. Jóla andinn ef nú hreint alveg farinn burtu og er helst eitthvað að láta vita af sér 1-2 mánuðum fyrir jólin, áður en maður fer í raunini að hugsa um jólin. Reyndar voru þeir í IKEA búnir að setja upp jólaskrautið 1. oktober þá leið manni hálf illa að koma þangað inn. Í dag er það undantekning að maður taki upp afþurkunarklútinn til að dusta af rykið.
Ég ólst upp við það, eins og margir aðrir að það væri hátíð um jólin og allir væru hreinir, klæddu sig fínt og héldu jólin hátðiðleg í anda jólanna. Það eru aðrir tímar í dag og jólin fynnast ekki nema þá helst á almanakinu litað rauðum tölustöfum. Ég fór að velta þessu fyrir mér í dag þegar ég þurfti að skila skirtunni sem ég keypti fyrir jólin til að lenda ekki í jólakettinum. því það voru göt á henni. Já önnur en fyrir höfuð hendur og búk. Sjálfsagt hefur jólakötturinn klórað í hana? Það voru nefnilega allar verslanir opnar í dag og eru opnar til kl. 21:00 eins og á virkum dögum. Og í gær byrjuðu útsölurnar og allar verslanir voru opnar til 16:00. Á rölti okkar, leyt yfir allt fólkið sem þaut milli verslana og ég kendi mig lítið utan við og passaði ekki alveg inn í hópinn og segi við Piu mína: Er fólk ekki venjulega sparíklætt á svona dögum?
Við vorum sennilega þau einu sem voru uppábúin af öllum þúsundunum sem við sáum í kringum okkur. Þá fór ég að skilja jólaskapið. Sennilega 60% af öllum sen voru þarna voru muslimar eða annarar trúar, sem að sjálfsögðu halda ekki jól og flestar verslanir í dag eru ráðnar fólki úr öðrum trúar félögum.Ég er því hættur að sjá tilgang með jólunum annað en græðgi verslana. Jólin eru ekki lengur hátíð jólanna, með fjölskildu og vinum. Þau eru hátíð verslana og fyrirtækj. Ekki nóg með það, auglýsingar framleiðslu fyrirtækja eru komnar út í fréttatíma ljósvakanna þar sem þau lýsa yfir skorti á hráefni til að annas jólamarkaðinum. Bara til að fólk hamstri vöruna áður en hún selst upp. Ný aðferð til að villa um og plata saklausa kaupendur.Þetta er búið að herja á okkur hér í Sverige síðustu 3 mánuðina auglýsingar og áróður fyrir jólin og svo þegar jólin loksin eru hér, eru þau bara ekki hér, allir búnir að fá sig full sadda á jólunum löngu áður en þau koma, nema þá börnin og verslunareigendur sem skilja ekkert í þessu og fá bara gjafir.Hej då Ingi